16.12.2009 | 17:54
Voðalegur æsingur er þetta...
Voðalega er lögreglan fljót að grípa til vopna. Er ekkert athugað nánar hvað er að ske áður en að allt lið er kallað út? Það er nú ekki langt síðan að maður las um að lögregla hafi veist að vopnuðum manni sem reyndist vera 12 ára barn með dótabyssu.
|
Byssumaður reyndist meindýraeyðir |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |

pallblondal
birgitta
evropa
vantru
Athugasemdir
hættulegustu menn á Íslandi, það er löggæslumennirnir.
Sakna þess tíma sem þeir hétu bara lögreglu ÞJÓNAR,
Sigurður Helgason, 16.12.2009 kl. 18:02
Taugaveiklunin í fólki, Guð minn góður, held að fólk ætti að sleppa því að gefa dótabyssur í jólagjafir, gæti reynst óleykur og kostað víkingsveitina inn um útidyrnar, gráa fyrir járnum til að gera "vopnin" upptæk og fært heimilsfólk í járn. Sumir eru greinilega farnir að taka frasann um " borg óttans " full alvarlega og sjá misyndismenn í öllum hornum. Þyrfti að vera hægt að sekta fábjána sem eru að hringja í móðusýki og senda sérsveitir í verra en erindisleysu. Vona að barnið sem víkingasveitin yfirbugaði um daginn sé búið að jafna sig á þeirri óþægilegu lifsreynslu.
SeeingRed, 16.12.2009 kl. 19:49
já eða maðurinn á N1 sem verslaði þar í sakleysi sínu með leikfanga byssu í vasanum og það var ruðst inn til hans 2 dögum seinna af vopnuðum unglingum,
Ekki er öruggt að versla við N1, gætir fengið vopnaðar löggur í heimsókn í kaupbætir,
Sigurður Helgason, 16.12.2009 kl. 20:27
Staðreyndin er nú sú að þessi maður er stórhættulegur handrukkari og vel þekktur í undirheimunum, tilkynningar um slagmál og læti frá þessu húsnæði eru á tugum, þar af leiðandi gerir Lögreglan ráð fyrir því versta þegar tilkynnt er um vopn á staðnum. Ég þoli ekki heimska moggabloggara sem að eru að kommenta á eithvað eins og þetta og hafa minnstu hugmynd um hvað málið snýst.... erlendir glæpamenn hlægja að þessu kerfi hérna. Ég meina það er ekki í mörgum löndum sem að Jói Fel er að kenna föngum að útbúa konfekt í sjónvarpinu. Eða einn þektasti handrukkari landsins fær samúð frá moggabloggurum vegna þess að löggan seigir honum að leggjast í jörðina í hvítu buxunum sínum. Ísland og íslendingar eru aumingjavættasta þjóðfélag í heimi, ekki nema von að útrásarvíkingarnir hafi tekið okkur ósmurt.
Af Ótta við handrukkara (IP-tala skráð) 17.12.2009 kl. 20:36
Vertu ekki svona hræddur Af Ótta við handrukkara, þoli ekki heimskingja með hland fyrir hjarta ef þeir sjá manneskju með tattú. Hræðsla og ótti að óþörfu er hjákátleg.
SeeingRed, 17.12.2009 kl. 21:28
reyndar hefur bara einu sinni verið komið að þessu húsi vegna "láta" og það var fyrir um viku þegar nöttarnir á sambýlinu héldu að væru slagsmál fyrir utan þegar 3 bílar komu á svipuðum tíma, enda er nokkuð öruggt að enginn maður hefur lætin heima hjá sér og þá sérstaklega ekki þessir frægu..
en eins og nú þá var bara ekkert í gangi nema menn sem komu frá ikea eða eitthvað að setja upp hillur og voru nett lítið hissa þegar eftir að greynilega var ekkert í gangi voru allir látnir gefa upp ástæðu veru sinnar og kennitölur...
held að löggi ætti að skoða að ef sambýlismaður sem varla er skiljanlegur í síma er að hringja inn læti á stað sem aldrei hafa verið læti á utan kannski 1-2 partý en þá þurfti mar samt að fara inn í garð hjá honum til að heyra í tónlist og get bara sagt fínn nágranni í alla staði og ég á ekki von á einum einasta glæp í öllu hverfinu :)
einhver forsaga sem var fyrir edrú tíma er engin afsökun en alveg í góðu fyrir lögga að tékka á svona símtölum en ættu að spá í því hver kemur með lætin heim til sín..
nágranni (IP-tala skráð) 17.12.2009 kl. 23:47
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.